Það fór ekki fram hjá neinum þegar rokkstjarnan Lenny Kravitz verslaði sér nýjan trefil í nóvember 2012 en þá sást hann á göngu um stræti New York þar sem mátti sjá ofurvaxinn tröllatrefil prýða hálsmál söngvarans.
Gjörningurinn var ógleymanlegur og þótti afþreyingarmiðlinum Buzzfeed tilefni til þess að vekja athygli á að tvö ár væru nú liðin frá uppátækinu.
Menn velta því fyrir sér hvort að ekkert minna dugi til að halda kappanum hita.
Trefillinn minnir helst á gólfteppi, rúmteppi eða já bara einhverskonar teppi…
Mottu jafnvel.
Þessi ljósmynd er reyndar fótósjoppuð þótt munurinn sé nú ekki mikill.
Tengdar greinar:
Instagram dagsins: Lenny Kravitz lagar vínyl
Fallegar leiðir til þess að endurnýja trefilinn
Þessar stjörnur eru skyldar hvor annarri