Leonardo DiCaprio (40) hvatti fólk til aðgerða til þess að bjarga heiminum og til að hjápa þeim sem minna mega sín á heimsborgarahátíð, sem haldin var í Central Park í New York. Hátíðin einblínir á að berjast gegn fátækt, ójafnrétti og veðrabreytingum jarðar.
Sjá einnig: Leonardo DiCaprio: Fúlskeggjaður með hárið í snúð
Fjöldinn allur af stórstjörnum mættu á svæðið til að sýna málefninu stuðning. Fríir tónleikar voru haldnir í tilefni þessa og stigu Coldplay, Ed Sheeran, Pearl Jam og Beyonce á svið.
Leonardo segir að málefni umhverfis okkar og baráttan til að bjarga fátækum séu nátengd og að pláneta okkar og þeir sem minna mega sín geti ekki lengur beðið eftir því að fólkið taki málin í sínar hendur. DiCaprio er þekktur fyrir að styðja umhverfismál og hvetja til aðgerða til að vernda umhverfið, dýr í útrýmingarhættu og hefur hann gefið háar fjárhæðir til verkefnis sem snýst um að hreinsa drykkjarvatn.
Gwyneth Palthrow var á VIP svæðinu og sýndi fyrrum eiginmanni sínum Chris Martin stuðning,
Fríir tónleikar: Coldplay steig á svið og lagði málefninu stuðning sinn.
Sjá einnig: Jennifer Lawrence & Chris Martin fóru huldu höfði í Los Angeles
Leikonan Diane Kruger kom á svæðið til að sýna stuðning sinn.
Susan Saradon og Salma Hayek.
Sjá einnig: 10 konur sem eru eldri en þig grunar
Leikkonan Kerry Washington talaði á hátíðinni.
Ed Sheeran er þekktur fyrir að vilja aðstoða minni máttar.
Jay-Z og Usher voru á meðal áhorfenda.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.