Fregnir herma að stórleikarinn Leonardo DiCaprio hafi endað samband sitt við 22 ára fyrirsætuna Toni Garrn samkvæmt Us Weekly. Parið sló sér upp í maí í fyrra en hefur þó látið lítið á sér bera í fjölmiðlum.
Sem dæmi hafa þau aldrei sést ganga saman á rauða dreglinum á opinberum uppákomum.
Sambandið er talið hafa endað í kjölfarið á að leikarinn, sem er orðinn fertugur, sást yfirgefa næturklúbb í Miami ásamt yfir 20 konum í einkapartí.
Leonardo DiCaprio hefur áður verið orðaður við að „deita“ fyrirsætur á borð við Kristen Zang, Emma Miller, Gisele Bundchen, Bar Refaeli og Erin Heatherton. Hann átti í ástarsambandi við fyrirsætuna Blake Lively sumarið 2011 en hún er giftist síðar Ryan Reynolds og gengur nú með þeirra fyrsta barn.
Er Leonardo DiCaprio svona óheppinn í ástarmálum eða er hann kannski ekki að leita sér að konu fyrir lífstíð?
Hann er allavega á lausu stelpur!
Tengdar greinar:
Þínar uppáhalds stjörnur – þá og nú