Þessi uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Þetta salat er alveg ótrúlega ljúffengt og létt í maga. Svo er auðvitað alveg tilvalið að nýta afganginn í nesti daginn eftir.
Sjá einnig: Syndsamlega ljúffengt satay-kjúklingasalat
Létt og laggott kjúklingasalat
1 pakki salatblanda
1 rauð paprika
1 agúrka
1/2 – 1 pakki furuhnetur
1 krukka fetaostur
3 kjúklingabringur
salt
hvítur pipar
hvítlauksduft
1 krukka grænt pestó
Sjá einnig: Kjúklingasalat með ljúfri hunangssósu – Uppskrift
- Rífið salatblöð í skál. Skerið papriku og agúrku smátt og blandið saman við salatblöðin.
- Þurristið furuhnetur á pönnu og sáldrið yfir salatið ásamt fetaosti án olíunnar.
- Kryddið kjúklingabringur með salti, pipar og hvítlauksdufti. Hafið í huga að pestóið er mjög salt svo það dugar að setja örlítið salt öðru megin á kjúklingabringurnar.
- Steikið kjúklingabringur í ofni við 180° í um 40 mínútur.
- Skerið bringurnar í hæfilega stóra bita og setjið í skál.
- Hrærið grænu pestó saman við kjúklingabringubitana og blandið saman við salatið.
Einfalt, fljótlegt og ljómandi gott!
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.