Þessi dýrðlegheit eru frá Gotterí.is. Æðislegt!
Þennan ís útbjó ég á í haust og er tilvalinn núna í janúar fyrir þá sem vilja gíra sig aðeins niður í sætindunum eftir hátíðarnar. Það er nefnilega alveg heilmargt sem er hægt að gera sem er gott en um leið hollara en margt annað.
Botn
- 120 gr döðlur
- 90 gr brasilíuhnetur
- ½ tsk salt
- 1 tsk vanilludropar
- 2 msk bökunarkakó
- 2 msk kókosmjöl
- 3 tsk vatn
- Allt sett saman í matvinnsluvél og unnið þar til þéttur massi.
- Setjið um eina matskeið í hvert pappaform og þrýstið yfir botninn.
Jógúrtís
- 2 x létt vanillujógúrt
- 1 ½ dl þeyttur rjómi
- 1 banani
- 10 fersk jarðaber + meira til skrauts ef þess er óskað
- Maukið saman banana og jarðaber í blandara.
- Vefjið jógúrti saman við þeyttan rjómann.
- Hellið ávaxtamaukinu saman við jógúrtblönduna og vefjið þar til vel blandað.
- Skiptið niður í pappaformin með því að hella yfir hrákökubotninn.
- Skerið niður jarðaber og setjið á toppinn sé þess óskað, ekki nauðsynlegt
- Frystið í nokkrar klukkustundir (yfir nótt) og losið þá úr formunum.
- Gott að geyma í boxi í frystinum og ná sér í einn og einn ís þegar gera á vel við sig
Það er æðislegt að eiga molana í frystinum og grípa þegar sykurþörfin kallar. Gott að leyfa ísnum að standa í nokkrar mínútur til að mýkja hann upp áður en hans á að njóta.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.