Maður fannst látinn í sundlaug í bakgarðinum hjá Demi Moore um helgina. Demi hafði verið í burtu vegna viðskipta í nokkra daga en nýverið setti Tallulah, dóttir Demi, mynd á Instagram af sundlaugarpartý sem átti sér stað á heimili þeirra. Ekki er þó talið að slíkt partý hafi átt sér stað þegar slysið varð. Maðurinn sem fannst látinn var 21 árs gamall, en fyrr um kvöldið hafði verið lítil samkoma á heimili Demi, samkvæmt aðstoðarmanni leikkonunnar. Eftir heimildum að dæma er talið að maður hafi fallið ofan í sundlaugina og verið ósyndur, en aðrar upplýsingar um málið hafa ekki komið fram.
Tallulah birti mynd á Instagram af sundlaugarparý í bakgarðinum heima hjá sér.
Leikonan Demi Moore var ekki í húsinu þegar atvikið átti sér stað.
Sjá einnig: Dóttir Demi Moore mætti loðin undir höndum á listasýningu
Demi ásamt dætrum sínum Scout og Tallulah við sundlaugina í bakgarðinum.
Sjá einnig: Demi Moore óþekkjanleg í Los Angeles
Vettvangur slyssins.
Lögreglan og fjölmiðlar mættu á svæðið um leið og fréttist af andláti mannsins.
Heimildir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.