Glamúrgellan og söngdívan Mariah Carey metur líkama sinn og raddbönd upp í himnaríki. Hún hefur nú sagt að hún hafi tryggt sig í bak og fyrir um rúma 8 milljarða.
Sjá einnig: Mariah Carey er trúlofuð billjónamæringi
Þau sem hafa fylgst með Mariah hafa væntanlega séð hana rokka upp og niður í fatastærð og tekið eftir ástríðu hennar fyrir því að láta setja mjúkan “filter” yfir myndir sínar, en hún er alltaf sama dívan. Margir segja að hún sé að meta sjálfa sig örlítið hátt, en þess má geta að allar eignir Kim Kardashian eru metnar á 10 milljarða saman lagt.
Mariah tryggði raddbönd sín fyrir 4,3 milljarða, ef ske kynni að rödd hennar færi að dala, en vissulega er gáfulegt að hafa sig tryggðan, sérstaklega ef maður heitir Mariah Carey.
Sjá einnig: Segir Mariah Carey hjartalausa norn
Sjá einnig: Grátbiður Mariah Carey um hjálp
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.