Söngstirnið Lily Allen hefur ekki sést með giftingarhring sinn frá því í september og sömu sögu er að segja um eiginmann hennar, smiðinn Sam Cooper. Sagan segir að hann hafi fundið sér aðra íbúð og flutt út af heimili þeirra hjóna og sé nú á fullu við að blanda geði við annað fólk.
Sjá einnig:Áhugaverður klæðaburður á The British Fashion Awards
Saman eiga þau dæturnar Ethel(4) og Marnie(2) og sagt er að þau séu nú hætt að láta reyna á samband þeirra. Lily hefur einnig sagt upp umboðsmönnum sínum, sem hefur gert það að verkum að fólk telur hana ekki vera á réttri hillu í lífinu en Lily og fyrrum umboðsmenn hennar hafa öll gefið út að ákvörðunin hafi verið sameiginleg. Lily fór einnig á samfélagsmiðla og tjáði fólki að hún væri ekki á slæmum stað og líkaði ekki að fólk talaði svoleiðis um hana.
Sjá einnig: Lily Allen tjáir sig um þá lífsreynslu að fæða andvana barn
Parið hefur ekki sést með giftingarhringa sína frá því í september og nú búa þau í sitthvoru lagi.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.