Nú í fyrsta sinn býðst viðskiptavinum Kringlunnar tækifæri á að nálgast alla kventískuvörulínu Lindex í 320 fm. rými á horninu við Símaganginn. Sértæk verslun sem hýsa mun kventískuvörulínu Lindex mun gera að verkum að öllum deildum Lindex verður gerð skil í Kringlunni , m.a. með opnun undirfataverslunar þann 4. október. Heildarfermetrar sem Lindex starfar á í Kringlunni verða um 700 við þessa breytingu og gera má ráð fyrir að starfsmannafjöldi Lindex á Íslandi fjölgi í yfir 100 við þetta tilefni. Verslun Lindex opnar laugardaginn 15. nóvember kl. 12:00.
Heildarvörulína Lindex kventískuvöru boðin í fyrsta sinn í Kringlunni
Mun nú í fyrsta sinn heildarvörulína Lindex kventískuvöru verða að fullu gerð skil í sértækri verslun á þessum einstaka stað á 2. hæð í Kringlunni þar sem áður var verslun Adidas. Lindex fagnar um þessar mundir 60 ára afmæli sínu sem haldið var upp á með glæsilegum hætti nú fyrir helgi í Gautaborg þar sem hausttíska Lindex og samstarf við hinn þekkta hönnuð Jean Paul Gaultier voru gerð frábær skil.
”Við erum nýkomin frá afmælinu í Gautaborg þar sem við fengum frábæran innblástur og innsýn inn í það sem koma skal í tískunni og erum gríðarlega spennt fyrir því að geta gert því skil í Kringlunni með einstökum hætti”–segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.
Verslunarrýmið, sem mun geyma allar kventískulínur Lindex, Holly & Whyte, Contemporary, Everyday, Generous og hina einstöku Lindex Extended, hefur yfir að ráða framhlið og staðsetningu sem á sér vart hliðstæðu með yfir 160 m2 af gluggum sem snúa út í aðalgöngugötu Kringlunnar.
Hönnun verslunarinnar mun geyma sérkenni sem ekki hafa sést áður í verslunum Lindex hér á landi með samblandi af skandínavískum einfaldleika í bland við liti og lýsingu sem miða að því að skapa tískuupplifun á heimsmælikvarða.
“Við erum sérstaklega ánægð að geta nú boðið kventísku Lindex í Kringlunni, vinsælustu verslunarmiðstöð landsins og erum full tilhlökkunar til áframhaldi samstarfs”- segir Kristjana Ósk Jónsdóttir, markaðsstjóri Reita.
Meðfylgjandi eru myndir einkennandi fyrir hausttískuna en hér má finna frekari myndir úr tískusýningu helgarinnar:
Myndir úr línu Jean Paul Gaultier:
Myndband frá sýningu helgarinnar: