Lindsay Lohan (29) virðist loksins vera orðin hamingjusöm í lífinu sínu en hún hefur átt frekar erfitt uppdráttar á fullorðinsárunum. Hún er trúlofuð og ástfangin upp fyrir haus af Egor Tarabasov (22) en sást til þeirra á tónleikum í gær.
Sjá einnig: Lindsay Lohan hrækir á mann í New York
Lindsay leit frábærlega út í fleygnum, hvítum samfesting með fallegan hring á vinstri hendi sem er sagður vera trúlofunarhringurinn. Hringurinn er með grænum stórum eðalstein og Egor hefur ekkert verið að spara þegar hann keypti þennan.
Egor er rússneskur og fæddist í Moskvu en býr í London. Faðir hans er moldríkur viðskiptajöfur og Egor er að feta í fótspor föður síns og opnaði sína eigin fasteignasölu þó hann sé ekki nema rúmlega tvítugur.
Sjá einnig: Lindsay Lohan ætlar aldrei að læra á Photoshop
Það er frábært að sjá Lindsay svona ljómandi af gleði og hún var á staðnum með báðum foreldrum sínum sem er mjög sjaldséð, en foreldrar hennar hafa á stormasamt samband eftir að þau skildu.
Heimildir: HollywoodLife
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.