Þessar dýrðarinnar pavlovur eru frá Gotterí og gersemum. Algjör konfekt fyrir augu og bragðlaukana.
Kókos pavlour
- 4 eggjahvítur
- 4 dl sykur
- 1 ½ dl Til hamingju gróft kókosmjöl
- 300 ml þeyttur rjómi
- Kirsuber til skrauts
- Hitið ofninn 110°C.
- Þeytið saman eggjahvítur og sykur þar til stífir toppar myndast.
- Vefjið kókosmjölinu saman við með sleif.
- Setjið í stóran sprautupoka með hringlaga stút (eða klippið gat á sterkan poka)og sprautið litla toppa á bökunarplötu (um það bil 4-5 cm í þvermál). Búið síðan til smá holu í miðjuna með botninum á teskeið til að meira pláss myndist fyrir rjómann.
- Bakið í 50 mínútur og kælið.
- Sprautið þeyttum rjóma á hverja pavlou og skreytið með kirsuberi.
- Uppskriftin gefur um 35-40 stk af litlum pavloum.