Hérna eru á ferðinni ótrúlega bragðgóð hrástykki sem fullnægja sykurþörfinni algjörlega. Uppskriftin er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar sem ég mæli eindregið með að allir kíki á. Eins er hægt að fylgjast með Tinnu á Facebook.
Sjá einnig: Hrákaka með ávöxtum – Æðisleg uppskrift frá Tinnu!
Gómsæt hrástykki
20 mjúkar döðlur
60 g trönuber
50 g kasjúhnetur
50 g pecanhnetur
30 g kókosflögur
- Hakkið döðlur, trönuber, kasjúhnetur, pecanhnetur og kókosflögur í matvinnsluvél þar til deigið verður klístrað og hnoðast saman í kúlu.
- Sléttið úr deiginu í sílíkonform eða bökunarpappírsklætt brauðform og frystið í um 40 mínútur.
- Takið úr forminu og skerið í hæfilega stór hrástykki.
- Vefjið hverju stykki inn í bökunarpappír og geymið í ísskáp eða frysti.
- Ég hef mín hrástykki fremur lítil því þau eru svo ofboðslega sæt og orkumikil.
Ofureinfalt og svo ljúffengt, þið verðið að prófa.
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.