Félagi Channing Tatum og Joe nokkur Manganiello birtast brátt skyrtulausir á hvíta tjaldinu – hlið við hlið – hnykkjandi mjöðmum undir skerandi frygðarópum kvenna og eiga án efa eftir að trylla kvenpeninginn víða um veröld með glottinu einu saman.
.
Þannig er framhald kvikmyndarinnar Magic Mike – Magic Mike XXL – væntaleg í kvikmyndahús nú í sumar … og fyrsta stikla myndarinnar … er komin út.
Sjálfur birti Channing þessar myndir á Instagram í gær, en stiklan var frumsýnd The Ellen Show og viti menn (og konur) – kynþokkinn drýpur af hverri senu.
Verði okkur öllum að góðu – Channing er að koma!
Tengdar greinar:
Kynþokkafyllstu menn í heimi – Ungir og „eldri“ – Myndir
Joe Manganiello er 110% fullkominn karlmaður – Kyntákn vikunnar
5 sjóðheitir kappar til að elta á Instagram
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.