Þegar rétt um 50 ár voru liðin frá andláti gyðjunnar Marilyn Monroe komu tveir kassar í leitirnar heimili Lee Strasberg, leiklistarleiðbeinanda hennar. Kassarnir innihéldu persónuleg bréf sem Marilyn sjálf hafði ritað – dagbækur og ljóð.
Í þessari bandarísku heimildarmynd frá árinu 2012 fara leikarar, kvikmyndagagnrýnendur, blaðamenn og rithöfundar yfir þessi áður óþekktu verk Marilyn og skeggræða stúlkuna sem reis upp á stjörnuhimininn; hét áður Norma Jean en lést á hátindi ferilsins sem Marilyn Monroe.
Kvikmyndin er einnig byggð á innihaldi bókarinnar “Fragments” sem útleggjast mætti á íslensku sem “Brot” og kom út árið 2010. Upphaflega var myndinni ætlað að bera nafnið Brot en var síðar meir breytt og ber hún nafnið Love, Marilyn.
[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”xeNya3QAeEw”]
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.