Þegar talað er um „lýsandi“ maska má ekki misskilja það þannig að húðin verði hvítari, heldur verður húðin bjartari og með meiri útgeislun. H
ér á eftir kemur uppskrift af maska sem nota má tvisvar í viku í 20 mínútur í senn. Þessi maski er græðandi, rakagefandi og lýsandi. Hann dregur saman húðina og minnkar sýnilegar húðholur, minnkar ásýnd öra eftir bólur og minnkar líkur á að bólur komi upp á yfirborðið.
Hér kemur uppskiftin:
2 tsk sýrður rjómi
2 tsk hunang
1 tsk eplaedik eða sítrónusafi
Berist á hreina húð.
Gangi ykkur vel!
Vilt þú senda fyrirspurn til snyrtifræðings? Sendu þá póst á inga@hun.is
Inga er fædd og uppalin í Reykjavík fyrir utan 2 ár sem hún bjó fyrir vestan í Bolungarvík. Þessi gifta, þriggja barna móðir er menntuð snyrtifræðingur og hefur unnið við það síðan 2006. Snyrtifræðin á stóran hluta af hug hennar og fagnaði hún þessu tækifæri að fá að skrifa greinar og jafnvel fá að aðstoða lesendur við vanda/spurningar sem þeir mögulega hafa.