Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Björgu Ólavíu Ólafsdóttur, 48 ára, til heimilis í Kópavogi, en síðast er vitað um ferðir hennar í Hlégerði í Kópavogi síðdegis á mánudag, 13. apríl.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Björg sé 171 sentimetrar á hæð, þrekvaxin og með brúnt, axlarsítt hár.
„Hún er klædd í svarta úlpu. Björg hefur til umráða gráan (tvílitan) Hyundai Santa Fe, skráninganúmer TR310. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Bjargar, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112,“ segir í tilkynningunni.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.