Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir hinni sextán ára Stefaníu Casöndru Guðmundsdóttur, en hennar hefur verið saknað frá 27. desember síðastliðnum. Stefanía er brúnhærð og um 170 sentímetra há en hún fór frá heimili sínu á milli jóla og nýárs og hefur ekki sést síðan þá.
Að sögn lögreglu er hún líklega á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem verða varir við Stefaníu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800, eða að hafa samband við næstu lögreglustöð.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.