Mikið er nú gott að geta beint athyglinni að loðnum fjórfætlingum þegar ekkert nema vesen og leiðindi dynur yfir landsmenn og þjóð. Stjórnmál, fjárhagslegir erfiðleikar og önnur vonbrigði hverfa eins og dögg fyrir sólu svona rétt á meðan horft er á þessar myndir.
Ráðlagður dagsskammtur af krúttlegum kanínum og öðrum loðnum félögum er einmitt nokkrir bollar á dag.