Madonna hefur gert mikið út á kynþokka sinn undanfarið – allt til þess að selja nýjustu plötu sína, Rebel Heart. En það eru mögulega ekki allir sem slefa yfir poppdrottningunni ef marka má atburði gærkvöldsins. Madonna steig á svið, ásamt söngvaranum Drake, á Coachella – tónlistarhátíðinni víðfrægu og í miðju lagi kemur hún aftan að Drake, þar sem hann situr á stól og smellir á hann einum verulega blautum.
Sjá einnig: Madonna dettur niður tröppur á BRIT Awards
Að sögn viðstaddra stóð kossinn yfir í drjúga stund og reyndi Drake að ýta söngkonunni í burtu. Þegar Madonna loksins sleppti takinu var augljóst að Drake var ekki parhrifinn af uppátækinu. Á andliti hans mátti sjá skelfingarsvip – á meðan hann þurrkaði sér ítrekað um munninn.
Madonna virtist ekki taka eftir þessum viðbrögðum söngvarans og hélt áfram að dansa um sviðið eins og ekkert hefði í skorist.
Sjá einnig: Madonna: mér var nauðgað en ég tilkynnti það aldrei
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.