Kim Kardashian sem á von á sínu öðru barni á næstu vikum sýndi glæsilegan líkama sinn á rauða dreglinum í Los Angeles á laugardagskvöldið.
Sjá einnig: Eyddi yfir 250 milljónum í 60 ára afmæli sitt
Raunveruleikastjarnan mætti í gegnsæjum blúndusamfesting og í síðum jakka yfir. Það var nokkuð augljóst að Kim stal allri athygli á þessum rauða dregli fyrir hinn árlega viðburð LACMA Film + Art Gala sem var verið að halda í fimmta skipti.
Sjá einnig: Kim Kardashian birti óvart ,,ófótósjoppaða“ mynd af sér
Kim er greinilega hvergi nærri hætt þrátt fyrir að vera komin 8 mánuði á leið því kvöldinu áður fagnaði hún 60 afmæli móður sinnar með allri fjölskyldunni.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.