Að ganga með barn er byltingarkennt ferðalag. Flestar göngum við í gegnum álag á meðgöngunni, ógleði, grindarverki, þreytu og jafnvel kvíða. Það er um að gera að reyna að njóta þegar það er mögulegt og að gera þennan sérstaka tíma sem eftirminnilegastan.
Hér má sjá nokkrar fallegar kúlur sem hafa fengið að prýða ýmiskonar listaverk. Þegar allt kemur til alls er kvenlíkaminn í sjálfu sér stórkostlegt listaverk sem er fær um að skapa líf. Nýja manneskju!