1. Mamma passar þig fyrir öllum hættum og mun alltaf vera þér við hlið
2. Mamma þín mun elska þig hvernig sem þú lítur út, jafnvel þó þú sért mjög ólík/ur henni. Hún veit að útlit skiptir ekki máli og það það sem er innra með þér sem skiptir máli.
3. Mamma heldur barninu sínu alltaf hreinu jafnvel þó það þýði að hún þurfi að sleikja á því andlitið
4. Mamma er alltaf til staðar til að knúsa þig, sérstaklega ef einhver er að stríða þér
5. Mamma mun leiðbeina þér með framtíðarplönin og þó það verði erfitt veistu alltaf að mamma mun verða við hliðina á þér
6. Mamma mun vaka yfir þér meðan þú sefur og ef þú færð martröð þá er mamma til staðar fyrir þig
7. Mamma verður alltaf til staðar til að hvetja þig ef þú festist einhversstaðar og mun gera hvað sem er til þess að hjálpa þér að ná takmörkum þínum
8. Mamma mun standa með þér, hver svo sem áhugamál þín og ástríður verða
9. Mamma verður alltaf til staðar til þess að aðstoða þig að komast af stað því hún veit að þér tekst allt sem þig langar að gera
10. Mamma er líka alltaf til í að leggja þér lið ef þú verður þreytt/ur, jafnvel þó hún sé þreytt líka
11. Mamma kennir þér á alla litlu hlutina í lífinu og stendur við hliðina á þér þegar þú tekst á við nýjungar ef ske kynni að þú þyrftir aðstoð
12. Mamma getur alltaf veitt þér öxl til að gráta við og hlustar á öll þín vandamál
13. Hvenær sem þú þarft á mömmu að halda er hún tilbúin til þess að knúsa þig og kyssa því hún veit að þá mun þér líða betur
14. Móðurástin er sterk og mamma mun alltaf elska þig, þrátt fyrir allt. Mundu að segja mömmu þinni í dag að þú elskar hana!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.