Samantha Lee frá Malasíu byrjaði árið 2008 að skreyta matinn til að hvetja dóttur sína, þá 19 mánaða gamla, til að borða sjálf.
Lee leitaði að hugmyndum á netinu og fór að búa til sköpunarverk sín með því að nota aðeins hníf og skæri.
Síðan þá hefur henni farið fram. Í dag er hún orðin tveggja barna móðir og byrjar hún á því að teikna hugmyndir sínar á blað til að sjá hvernig þær koma út og koma í veg fyrir að hún hendi mat.
“Ég kýs að halda matnum eins í laginu og hann er. Ef að ég fer að skera þá til eða í öðruvísí búta þá veldur það því að ég hendi fullt af mat”. Að elda frá byrjun tekur Lee 30 mínútur til 1 klst. “Ég skreyti matinn á meðan ég elda og það tekur mig 1 klst. að elda frá byrjun þar til maturinn er tilbúinn”.
Að elda og finna karakter er auðveldi hlutinn. “Ég fer í gegnum Instagram til að finna karaktera sem að ég hef ekki útbúið áður eða þá sem að ég er búin að nota sem ég get notað aftur með öðru hráefni og aðferð”.
Síðan ákveður Lee hvort að hún útbýr matinn sem morgunmat, hádegisdag, snarl milli mála eða kvöldmat, en hún heldur sig alltaf við einfalt hráefni. “Það er mun hagkvæmara fyrir fjölskylduna”.
“Það er svo gaman að sjá hvað stelpurnar hafa gaman af að borða og búa til sögur um matinn sem ég útbý”, segir Lee og segir að hún hvetji dætur sínar til að giska á hvað þær sjá á matardisknum. Hingað til hafa þær ekki átt í vandræðum með það.
Samantha er með síðu á facebook hér
Hún er líka á Instagram með yfir 300 þúsund fylgjendur hér
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.