Söngfuglinn og dívan Mariah Carey(45) hefur nú trúlofast ástralska billjónamæringnum og spilavítiseigandanum James Packer(47). Þau opinberuðu samband sitt í júní á þessu ári, en James fór á skeljarnar í New York fyrir stuttu. Hann bauð öllu því fólki sem næst var söngkonunni að koma út að borða, svo allir gætu verið vitni að bónorðinu. Talið er að hringurinn sé gríðarstór 35 karata demantshringur, en engar fregnir hafa borist af dagsetningu tilvonandi brúðkaups enn sem komið er.
sjá einnig: Mariah Carey skartar gylltum sundbol
Parið hittist fyrst í Aspen fyrir um ári síðan, þegar þau mættu til frumsýningar á Herkúles myndinni, en eftir það hefur sést til þeirra í fríum hér og þar, þar sem þau láta vel að hvort öðru.
Sjá einnig: DRAUMADEIT: Mariah Carey sönglar kæruleysislega eigin lög í framsætinu
Sjá einnig: Mariah Carey: Gleymir textanum á sviði – vægast sagt pínleg uppákoma
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.