- TYPEWRITER er lengsta orðið sem er hægt að skrifa með bara einni línu á lyklaborðinu.
- Marilyn Monroe var með sex tær á vinstri fæti.
- Árlega deyja um 100 manns af völdum kúlupenna.
- Þegar Coca Cola kom fyrst, þá innihélt það kókaín og var grænt á litinn.
- 40% af hagnaði McDonald’s fæst með sölu barnaboxa.
- Það eru meiri líkur á að þú munir deyja af völdum korktappa úr freyðivínsflösku en af köngulóarbiti.
- Bandarísk flugfélög týna samtals 200 töskum á meðaldegi.
- Yngsti páfi sögunnar var 12 ára.
- Mest notaða lykilorð í sögu upplýsingatækninnar er “password”.
- Kengúrur geta ekki gengið aftur á bak.
- Fiðrildi finna bragð með fótunum.
- Þegar maður hnerrar þá þenst munnurinn á manni út á yfir 1000 km hraða.
- Flær geta stokkið 350-falda lengd sína. Fyrir mann væri það eins og að stökkva yfir heilan fótboltavöll.
- Á meðaldegi slasast 40 manns á trampolíni.
- Í flestum klukkuauglýsingum er klukkan 10:10.
- Það eru 1.792 þrep í stiganum í Eiffel turninum.
- Búnaðurinn sem notaður er á flugmóðurskipum til að koma flugvélunum í loftið gæti fleygt vörubíl tvo kílómetra.
- MTV fór fyrst í loftið á miðnætti þann fyrsta águst 1981. Fyrsta myndbandið var “Video Killed the Radio Star” með Buggles.
- Hægra lunga mannsins getur geymt meira loft en vinstra lungað.
- Risakolkrabbar hafa stærstu augu í heimi.
- Í Los Angeles eru fleiri bílar en íbúar.
- Aðeins 55% Bandaríkjamanna vita að sólin er stjarna.
- Á Nýja Sjálandi eru um 70 milljónir kinda en 4 milljónir manna.
- Lengsta eins atkvæðis orðið í ensku er “screeched”.
- Sumar tegundir af gervirjóma eru eldfimar.
- Efnablandan í dýnamíti inniheldur meðal annars hnetur.
- Það er til PEZ með kaffibragði.
- Þrjár stærstu blaðaútgáfur heims eru Rússneskar.
- Stærstu korktappaframleiðsluríki heims eru Spánn, Portúgal og Algeria.
- Á löglegri golfkúlu eru 336 dældir.
Skoðaðu einnig: