Hreyfing heilsulind í Glæsibæ var með skemmtilega uppákomu fyrir meðlimi síðastliðinn laugardag. Boðið var uppá flotta og þétta hóptímadagskrá þar sem áherslan var á fjör og stemmningu.
Á neðri hæði húsins hélt svo d.j. Natalie uppi stemmningunni með skemmtilegri tónlist ásamt því að fólk gat gætt sér á léttum og bragðgóðum veitingum frá Lava, veitingarstað Bláa Lónsins og svalandi drykkjum frá Ölgerðinni.
Mikil og góð stemming myndaðist í húsinu og allir virtust skemmta sér konunglega.
Glæsileg ný hóptímatafla tók gildi í byrjun september og er taflan full af fjölbreyttum og skemmtilegum hóptímum og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fyrstu námskeið vetrarins hófust svo 2.september og var aðsóknin mjög góð og færri komust að en vildu. Ný námskeið hefjast svo þann 16.september og er vert að kynna sér þau.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.