Megan Fox (29) og Brian Austin Green (42) eru skilin eftir 11 ára ástarsamband en sambandsslitin áttu sér stað fyrir um 6 mánuðum. Saman eiga þau Noah (2) og Bodhi (18 mán).
Ástæða þess að þau eru að hætta saman er sögð vera að Megan hafi verið alltof upptekin af leikferli sínum. Hún hefur verið mikið að heiman í sumar en hún hefur eytt megninu af sumrinu í New York við tökur á næstu Teenage Mutant Ninja myndinni.
Sjá einnig: Megan Fox kynþokkafull í nýrri auglýsingu – Myndband
„Þau rífast vegna ferils hennar,“ segir heimildarmaður DailyMail og bætir við: „Hún var með það á heilanum að fá hlutverk.“
Brian vill að sögn heimildarmannsins hafa Megan meira heima með honum og börnunum í Los Angeles. Megan er hinsvegar mjög sjálfstæð og gerir það sem hún vill. Einnig olli það ágreiningi að Megan byrjaði á því að láta taka heimili þeirra í gegn en fór svo bara án þess að klára það.
Sjá einnig: Megan Fox eignaðist barn fyrir átta vikum! – Myndir
Megan og Brian halda þessu öllu á vinalegum nótum vegna barnanna en eru víst búin að halda áfram í sitthvoru lagi.
Þau kynntust árið 2004 og byrjuðu fljótlega saman og giftu sig árið 2010 á Hawaii.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.