Megrunardrykkir og drykkir með gervisykri eru taldir auka hættu á þunglyndi. Nokkrir kaffibollar á dag draga úr hættu á þunglyndi. Þetta sýnir niðurstaða nýrrar rannsóknar bandarískra vísindamanna.
Rannsóknin náði til 250 þúsund Bandaríkjamanna og stóð í 10 ár. Í ljós kom að kaffidrykkja tengist minni hættu á þunglyndi. Hins vegar er þunglyndi algengara hjá þeim sem neyta drykkja sem sykraðir eru með sætuefnum, en hinum sem ekki neyta sætuefna.
Vísindamennirnir sem starfa við Heilbrigðisstofnun Norður-Karolínu komust að því að fólk sem drakk fjóra kaffibolla á dag voru í 10% minni hættu á að greinast með þunglyndi en þeir sem ekki drukku kaffi. En þeir sem drukku fjórar dollur eða flöskur á dag af drykkjum sem sykraðir voru með gervi-sætuefnum juku hættuna á að greinast með þunglyndi um þriðjung.
Sætuefni í mat og drykk eru mjög umdeild. Sum sætuefni eins og aspartame eru talin mjög heilsuspillandi og rannsóknir sýna að aspartame eykur hættu á að fólk fái blóðkrabbamein. Talsmaður skýrsluhöfunda segir að rannsóknin bendi til að með því að skipta út drykkjum með sætuefnum og drekka í staðinn ósætt kaffi sé hægt að draga úr hættunni á þunglyndi.
Ef þú villt vita meira þá eru hér linkar og myndbönd:
Drykkja á sykurlausum gosdrykkjum tengt við þunglyndi.
Aspartam er hættulegasta bætiefnið í mat og drykki í dag.
Hvernig mergunadrykkir þyngja þig
5 áhugaverðir aukaverkanir vegna drykkju á sykurlausum gosdrykkjum
http://www.youtube.com/watch?v=VU_BXsNd7GA
Heimildir:
mbl.is 09 janúar 2013
Birt með góðfúslegu leyfi heilsufrelsi.is
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.