Forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, vekur athygli hvar sem hún kemur fyrir óaðfinnanlegan og stílhreinan fatasmekk. Í gærkvöldi klæddist Michelle Obama kjól eftir hönnuðinn Brandon Maxwell við hátíðarkvöldverð í Hvíta húsinu og hafa slúðurmiðlar vart haldið vatni yfir því hversu glæsileg forsetafrúin var. Og svo virtist sem Obama sjálfur héldi heldur ekki vatni yfir eiginkonu sinni.
Sjá einnig: Er Michelle Obama búin að raka sig sköllótta?
Forsetinn ánægður með sína.
Kjóllinn er úr smiðju Brandon Maxwell – en Lady Gaga heldur mikið upp á hönnuðinn.