Samkvæmt Eyjunni er Mikael Torfason hættur sem ritstjóri Fréttatímans, eftir aðeins hálft ár í starfi, og mun Sigríður Dögg Auðunsdóttir taka við starfi hans.
Mikael var ráðinn til blaðsins í ágúst síðastliðnum og hefur því bara verið starfandi hjá Fréttatímanum í 6 mánuði.
Í tilkynningu frá útgáfufélagi Fréttatímans segir að Sigríður Dögg hafi tekið virkan þátt í þróun og eflingu Fréttatímans undanfarið ár sem hafi skilað auknum lestri.