Mila Kunis þorir ekki að vera með rándýra Tiffany’s trúlofunarhringinn sinn sem Ashton Kutcher eiginmaður hennar færði henni. Hún geymir hann í öryggishólfi, en keypti þess í stað 10.000 króna einfalda giftingarhringi fyrir sig og eiginmanninn frá Etsy.
Sjá einnig: Mila Kunis og Ashton Kutcher eiga von á öðru barni sínu
Ég get ekki verið með trúlofunarhringinn minn vegna þess að það á einhver eftir að höggva af mér hendina. Þess vegna er hann í öryggishólfi.
Hugmyndin á bak við ódýrari hringana var að hún vildi ekki að giftingarhringurinn myndi skyggja á fegurð trúlofunarhringsins, en eins og margir vita, þá bera sumir trúlofunarhringinn og giftingarhringinn saman á fingri.
Ashton og Mila eiga nú von á sínu öðru barni saman, en þau hafa verið gift frá því í júlí í fyrra. Þau hittust fyrst þegar þau léku saman í That 70´s Show árið 1998, en á þeim tíma var engin rómantík í loftinu á milli þeirra.
Sjá einnig: Dóttir Ashton Kutcher og Mila Kunis er algjört æði
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.