Miley Cyrus getur ekki leynt gleði sinni yfir að vera komin með trúlofunarhringinn sinn aftur, sem Liam Hemsworth gaf henni þegar þau voru trúlofuð árið 2012.
Liam hefur ekki enn staðfest fregnirnar um að þau hafi trúlofast enn á ný, en Miley sér til þess að stóri demanturinn fari ekki framhjá neinum.
Sjá einnig: Miley eyddi áramótunum með Liam
Þau byrjuðu að tala saman aftur í vor, en voru bæði mjög hikandi að láta verða af frekara sambandi, svo það var ekki fyrr en Miley lauk tónleikaferðalagi sínu í desember, sem þau fóru að hittast. Miley flaug til Ástralíu á milli jóla og nýárs og hafa þau sést mikið í almenningi síðan. Þau voru saman í eftirparý Golden Globes verðlaunahátíðarinnar og voru ekkert að fela ástúð sína til hvors annars.
Miley er nú flogin aftur til Ástralíu að hitta Liam, en svo virðist sem skrautlegt líferni Miley fari ekkert fyrir brjóstið á honum og telja margir að Miley hafi bara þurft smá tíma til að rasa aðeins út.
Sjá einnig: Miley Cyrus trúlofuð á ný
Sjá einnig: Litla systir Miley Cyrus heldur „krípí“ afmæli
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.