Söngkonan Fergie (41) sópaði saman nokkrum heimsþekktum mæðrum og fékk þær til að taka þátt í nýju tónlistarmyndbandi sínu fyrir lagið MILF $.
Sjá einnig: L.A. Love: Sjóðheitur partýsmellur frá Fergie
Í myndbandinu á finna stjörnur á borð við Kim Kardashian, Chrissy Tiegen, Ciara, Alessandra Ambrosio, Gemma Ward, Tara Lynn, Devon Aoki, Angela Lindcall, Isaveli Dontana, Amber Valetta og Natasha Poly og eiga þær allar sameiginlegt að vera mæður.
Með því að gera slíkt mynband, ætlar Fergie sér að hækka aðeins tóninn í hugtakinu MILF, sem er hugtak sem ansi margir þekkja í dag og því ekki talin þörf á því að útlista nákvæmri skýringu á þeirri setningu, sem Milf stendur fyrir. Hún segir að hún vilji hvetja konur til að nýta kraft sinn og láta ekki móðurhlutverkið kom í veg fyrir að þær noti krafta sína í að gera allt. Þessar mæður sem komu fram í myndbandinu eru mæður og hafa samt sem áður tíma til þess að hugsa um sig sjálfar og leyfa sér að finnast þær vera kynþokkafullar.
Sjá einnig: Fergie birtir mynd af gullfallegum syni sínum og skellir sér á stefnumót með makanum
Fergie á tveggja ára son, Axl með eiginmanni sínum, leikaranum Josh Duhamel og segist hún gjarnan vilja eignast annað barn á næstunni. Ef hún fengi að velja myndi hún vilja eignast stelpu svo hún geti hannað fyrir hana hennar eigin ilmvatnslínu.
Í enda myndbandsins vaknar Milf maðurinn í örmum hennar á meðan hún notar viftu til að hjálpa honum að vakna til meðvitundar.Fergie er alveg með málin á hreinu og er töffari með meiru.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.