Maður sem slasaðist alvarlega í flugeldaslysi á Gamlárskvöld á Selfossi er nú kominn heim af sjúkrahúsi. Hann mun hafa misst þrjá fingur annarrar handar alveg og hluta þess fjórða. Þá er hann nokkuð skorinn á hinni höndinni en önnur meiðsl eru minni.
Maðurinn kveðst hafa keypt flugeldinn, sem slysinu olli, hjá einkareknum sölustað í Hafnarfirði og að um hafi verið að ræða svokallaða kúlurakettu. Hann segist hafa kveikt í rakettunni með venjubundnum hætti, hún hafi farið upp en kúlan sjálf losnað frá og rúllað á jörðinni. Hann hafi þá tekið kúluna upp en hún sprungið um leið með fyrrgreindum afleiðingum.
Áfram verður unnið að rannsókn málsins, m.a. með skoðun á sambærilegri vöru.
Kæru lesendur, farið þið varlega í kvöld þegar jólin verða kvödd með flugeldum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.