Mjólkurhvítar og vel snyrtar neglur koma sterkar inn á hásumri og það sem meira er; mjallahvítur liturinn er gullfallegur.
Svífandi léttur hvítur liturinn getur orkað seiðandi og skemmtilega kvenlegur við hvaða samsetningu sem er, allt frá gallabuxum og til síðkjóla. Á Instagram er að finna úrval af #manicure ljósmyndum sem sýna svart á hvítu að sumarliturinn í ár er klassískur, kvenlegur og léttur. Og ekki spilla fallegir fylgihlutir fyrir!
Undursamlega freistandi … í einu orði sagt.
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.