Tess Holliday (30) er vinsæl fyrirsæta fyrir stærri stæðir. Hún er sjálf í særð 22 og nýtur þess að fagna líkama sínum í allri sinni dýrð. Módelið á 1.2 milljón fylgjendur á Instagram og nýlega birti hún myndir af sér allsnaktri.
Sjá einnig: Súpermódelið Tess Holliday er fáklædd, ögrandi og gullfalleg á Instagram
Myndin sem hún birti af sér sýnir allan líkama hennar, en Tess er komin 7 mánuði á leið af sínu öðru barni. Skoðanir fólks eru afar misjafnar, en fólk hefur jafnvel gengið svo langt að spyrja hana “hvernig í ósköpunum náðir þú að verða ófrísk?”
Þegar ég segi við fólk að ég er módel, horfa þau á mig eins og ég hafi sagst hafa drepið einhvern.
Þau horfa á mig með opinn munninn og stara á mig, eins og þau séu að reyna að átta sig á því hvort að þau hefðu skilið mig rétt.
Við eigum öll sama tilvistunarrétt, þó að við erum ekki sömu stærðar. Ég borga skatta og fyrir læknisþjónustu mína eins og allir aðrir.
Á síðasta ári var hún fyrsta módel sinnar stærðar sem skrifaði undir fyrirsætusamning við tískurisa.
Sjá einnig:Undirfatamódel brjóstfæðir og svarar gagnrýni á Instagram
Sjá einnig: Tískubloggarar í yfirstærð sem eru slá í gegn
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.