Chantelle Brown-Young er einungis 19 ára og hefur nú þegar vakið athygli fyrir einstakt útlit sitt en hún þjáist af húðsjúkdómi sem kallast vitligo eða skjallablettir. Sjúkdómurinn orsakar því að litlaus svæði myndast á líkamanum þar sem litaframleiðslan hættir á því svæði.
Þrátt fyrir þennan sjúkdóm hefur Chantelle ekki látið hann stoppa sig en hún komst inn í raunveruleikaþáttinn America´s Next Top Model. Þáttaröð númer 21 af þessum vinsæla þætti hefur göngu sína í sumar en það verður forvitnilegt að sjá hvernig þessari glæsilegu stelpu mun ganga.
Chantelle var strítt mikið í æsku fyrir útlit sitt og var uppnefnd ýmsum nöfnum líkt og „zebra“ og „milky“. Þó að æskan hennar hafi ekki verið dans á rósum er Chantelle mjög sjálfsörugg og ánægð með útlit sitt.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.