Þegar frost fór niður fyrir 16 gráður í Washington fékk Angela Kelly skemmtilega hugmynd.
Hún og 7 ára gamall sonur hennar blönduðu sápuvatn og fóru út og blésu sápukúlum út í ískalt loftið.
Angela tók myndir þegar frostið byrjaði að búa til mynstur í stærri kúlurnar á meðan þær minni frusu og brotnuðu þegar þær lentu á jörðinni.
Áður en sólin kom upp að nýju voru kúlurnar allar frosnar og litu út fyrir að vera úr gleri.
Þegar sólin byrjaði að skína byrjaði efri hluti kúlnanna að þiðna.
Stundum á milli þess að frjósa og þiðna áttu kúlurnar það til að taka á sig stórfurðulega mynd.
Sumar litu út fyrir að vera beint úr ævintýri.
Fyrir son Angelu var þetta reynsla sem var töfrum líkust.
Og fyrir Angelu var þetta eins og að sjá veröldina með augum barnsins, þrátt fyrir að það hafi bara verið einn eftirmiðdag.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.