Leikarinn knái, Rowan Atkinson – sem við vel flest þekkjum sem Mr.Bean, á kærustu sem er helmingi yngri en hann. En leikarinn hefur verið á föstu (opinberlega) með hinni 32 ára gömlu Louise Ford í rúmlega ár.
Sjá einnig: Madonna er komin með MIKLU yngri kærasta – Myndir
Atkinson og Ford kynntust árið 2012 þegar þau léku saman í leikritinu Quatermaine’s Terms. Rowan hafði þá verið giftur í 22 ár. Hann flutti úr frá eiginkonu sinni skömmu eftir að sýningum á leikritinu lauk. Hann sótti svo um skilnað snemma árs 2014.
Parið sást fyrst saman opinberlega fyrir rúmlega ári síðan – en þó er talið líklegt að þau séu búin að vera að stinga saman nefjum í 2-3 ár.
Sjá einnig: 5 ástæður þess að eldri konur laðast að yngri mönnum
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.