Þessi eldhúsáhöld eru vægast sagt mjög mikið öðruvísi. Þau eru hönnuð af listakonunni Christine Chin og notast hún við líkamsparta í þessum verkum sínum. Ég veit ekki alveg með þetta, ég held að ég myndi allavega missa matarlystina ef ég fengi svona á matarborðið hjá einhverjum. Þessi hár eru ekki alveg að gera sig og þetta er eiginlega allt frekar ógeðfellt.
Hvað finnst ykkur?
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.