Skiptar skoðanir eru útliti söngkonunnar Madonnu en á meðan sumum finnst hún líta ákaflega vel út þá finnst öðrum hún hafa farið of geist í bótoxið. Það getur þó enginn neitað því að hin 56 ára gamla söngkonu er í hörku formi.
Á fimmtudaginn voru myndum af söngkonunni lekið á netið sem voru teknar af henni árið 2010 fyrir tímaritið Interview. Þessar myndir hafa vakið athygli á netinu þar það er ekkert búið að eiga við myndirnar eða réttara sagt fótósjoppa þær.
Madonna er að sjálfsögðu glæsileg á myndunum þrátt fyrir að þær séu óbreyttar en þeir sýna sanna andlit söngkonunnar. Hún er 56 ára og því ekkert eðlilegra heldur en að hún sé með nokkrar hrukkur þannig er nú víst gangur lífsins.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.