Elsa Pataky eiginkona Chris Hemsworth var staðgengill Natalie Portman í sjóðheitri kossasenu í kvikmyndinni Thor: The dark world.
Í viðtali við New York daily news upplýsti Natalie að hún átti ekki kost á að komast til Hong Kong þar sem stóð til að taka upp senuna þannig að Elsa sló til (að sjálfsögðu). Chris var að vinna í Hong Kong og Natalie var að vinna að sinni næstu mynd.
Þannig að eiginkonu Chris var skellt í búning Natalie og hárkollu og engin furða að senan hafi verið ástríðufull.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.