Árið byrjar vel hjá Lindsay Lohan, skvísan vaknaði upp við vondan draum í Shanghai Kína þegar hún áttaði sig á að fartölvunni hennar hefði verið stolið á flugvellinum. Hún segist gera hvað sem er til að endurheimta hana því að, jú rétt til getið, í tölvunni er Lindsay með nektarmyndir af sjálfri sér.
Myndirnar munu hafa verið teknar við nokkur skipti og aldrei ætlaðar til birtingar. Á tölvunni eru einnig önnur atriði sem Lindsay vill hafa fyrir sig, eins og persónuleg samtöl við Woody Allen og Lady Gaga.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.