Leikkonan Nicole Kidman vakti mikla athygli áhorfenda þegar hún mætti í The Graham Norton Show á föstudagskvöldið.
Sjá einnig: Nicole Kidman: Hress og hrukkulaus á CMT tónlistarverðlaununum
Líklega var þetta ekki athyglin sem hún leitaðist eftir en Nicole var ófær um að hreyfa andlitið á sér. Nicole hefur ávallt neitað fyrir það að hafa farið í lýtaaðgerðir en viðurkenndi það síðan að hafa farið í bótox.
Sjá einnig: Hjólar Nicole Kidman niður! – Myndband
Hin 47 ára gamla Nicole sagði árið 2013:
Engar aðgerðir fyrir mig; ég prufaði bótox, því miður, en ég er hætt því og loksins get ég hreyft andlitið á mér aftur.
Áhorfendur The Graham Norton Show voru ekki sannfærðir um leikkonan hefði lagt bótox sprauturnar á hilluna fyrir fullt og allt.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.