Hún hefur alltaf verið talin með fallegustu konum í heimi, en merkilegt þykir hversu vel henni hefur tekist til að viðhalda unglegu útliti sínu. Nicole er 49 ára gömul og hefur lítið breyst frá því hún var að byrja leiklistarferil sinn í Hollywood.
Sjá einnig: Nicole Kidman er búin að fara of langt í bótoxinu
Oft á tíðum hefur verið talað um að Nicole hafi farið undir hnífinn og sé mikill aðdáandi fyllinga margs konar. Sumir hafa jafnvel talað um að andlit hennar sé bókstaflega frosið í tíma. Nicole segir þó sjálf að hún hugsi mjög vel um heilsu sína og hefur meðal annars gerst sendiherra fyrir vítamínmerkið Swisse. Hún segir það vera vegna þess að hún vilji stuðla því að fólk viti hversu mikilvægt er að hugsa vel um heilsuna í annasömu lífi og að hún elskar að vera heilbrigð og í góðu formi.
Sjá einnig: Nicole Kidman: Hress og hrukkulaus á CMT tónlistarverðlaununum
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.