Mikilvægi sparnaðar og þess að fylgast vel með því í hvað peningarnir mínir fara.
- Ekki eyða meiru en þú aflar. Einfaldur sannleikur sem fellur aldrei úr gildi.
- Losaðu þig við yfirdráttinn, mjög óhagstæðir vextir sem geta verið íþyngjandi.
- Haltu heimilisbókhald, það marg borgar sig að hafa góða yfirsýn yfir fjármálin.
- Skipulegðu matarinnkaupin vel, ekki fara svangur út í búð og kauptu meira í einu og sjaldnar.
- Hjólaðu frekar en að keyra, það er góð hreyfing, gott fyrir umhverfið og gott fyrir fjárhaginn.
- Farðu vel yfir fasta útgjaldaliði heimilisins og fáðu tilboð í tryggingarnar þínar, farsímann og þar fram eftir götunum.
- Drekktu vatn, frekar en gos eða aðra sykraða drykki. Gott fyrir líkamlega og fjárhagslega heilsu.
- Afþreying er oft stór útgjaldaliður, vertu sniðug/ur og farðu í sund, fjallgöngu eða eitthvað sem kostar ekki mikla peninga.
Heimildir: Fréttatíminn