Kardashian West fjölskyldan gerði sér glaðan dag um helgina og fór í bíó. Kim var í sínu fínasta pússi að venju og skartaði meðal annars skósíðri Lavin kápu að verðmæti 600 þúsund krónur. Svona rétt rúmlega.
Sjá einnig: Hvernig mun sonur Kim og Kanye líta út?
Að lokinni bíóferð gekk Kim um með North litlu í fanginu en North lét fara vel um sig í fangi móður sinnar á meðan hún skóflaði í sig poppi af áfergju. Glöggir ljósmyndarnar, sem jú fylgja fjölskyldunni við hvert fótmál, komu auga á væna fitubletti í rándýru kápunni hennar Kim. Sem mögulega má rekja til North og popppokans góða.
Sjá einnig: Kim Kardashian og Kanye West eru bara venjuleg eftir allt saman – Sjáðu myndina
Miðillinn Daily Mail segir North hafa eyðilagt kápuna. Er það nú ekki dálítið djúpt í árina tekið?