Síðustu helgi leit dagsins ljós ný tískuverslun á netinu, DUSTED!
DUSTED stílar inn á flottan og þægilegan “götulúkk“ fatnað með vandaða boli, leggings, peysur, töskur, skart og aðra fylgihluti.
DUSTED aðgreinir sig frá öðrum tískuverslunum á netinu að tvennu leyti:
“Í fyrsta lagi leitumst við hjá DUSTED við að bjóða upp á annars konar úrval af fatnaði og fylgihlutum en finnst hjá öðrum vefverslunum. Við leggjum mikið upp úr að bjóða upp á einstakar og vandaðar vörur eftir spennandi hönnuði, jafnt íslenska sem erlenda, þekkta sem óþekkta. Vörurnar hjá DUSTED koma í takmörkuðu upplagi og oft er aðeins um eina einstaka vöru að ræða af hverri tegund, sem gerir vörurnar bæði skemmtilegri og meira “júník”. ”
Eigendur Dusted hafa tekið eftir því að lítið hefur verið í boði fyrir stráka hingað til, nú verður þó breyting á:
“Í öðru lagi vill DUSTED kynna strákana fyrir hugmyndafræðinni „að verlsa fatnað á netinu“, en okkur hefur fundist ábótavant hvað lítið hefur verið í boði fyrir stráka. DUSTED býður upp á úrval af unisex vörum sem henta því jafnt strákum sem stelpum. Þegar fram líða stundir komum við til með að bjóða upp á mun meira úrval tískufatnaðar fyrir stráka eingöngu.”
DUSTED er bæði með facebook síðu sem þú getur nálgast hér , þar sem nýjustu fréttir af tísku og úrvali í versluninni verða uppfærðar daglega, og netverslun, www.dusted.is sem inniheldur m.a. blogg og skemmtileg lookbook.
Hér má sjá nokkrar vörur frá þessari fallegu verslun:
Flottar flauelsleggings
Skyrta