Paul McCartney gerði nýjasta tónlistarmyndbandið sitt með hjálp nokkurra vina.
Frægra vina. Söngvarinn gaf á fimmtudag út myndband við lagið “Queenie Eye” af nýjustu plötu sinni “New”, myndbandið byrjar þar sem að hann spilar á píanó í Abbey road stúdíóinu, þar sem að Bítlarnir tóku upp plötur sínar.
“Að vera í þessu herbergi og sérstaklega að vera í þessu herbergi með Paul var einstök upplifun af því að þetta herbergi breytti heiminum”, segir Johnny Depp sem er ein af mörgum stjörnum í myndbandinu. Meryl Streep, Kate Moss og Jude Law sjást einnig dansa og syngja í myndbandinu.
Hversu margar stjörnur þekkir þú?
[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”5CfLUmVso30#t=133″]
Hér má sjá hvað gerðist á bakvið tjöldin við gerð tónlistarmyndbandsins:
[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”tSAc7JNx2PA#t=115″]
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.