Að baki MouseTrap standa þeir Ágúst Ævar Guðbjörnsson, grafískur hönnuður, Jóhann Helgi Ólafsson hugbúnaðarhönnuður og Vilhjálmur Snær Ólafsson leikja- og hljóðhönnuður.
“Við vorum ansi ánægðir að hafa fengið flýtimeðferð frá Apple til að koma leiknum í loftið á áætluðum tíma og erum að sjálfsögðu afar stoltir að sjá leikinn kominn út. Upphaflega spratt hugmyndin út frá leiknum Snake en hinsvegar er leikurinn á allt öðru formi og gengur meira út á að lifa af. Í fyrstu verður leikurinn fáanlegur fyrir Apple síma og þar í framhaldinu kemur Android” segir Vilhjálmur.
Mikil þróunarvinna liggur að baki Dot-A-Lot sem hófst snemma á þessu ári. MouseTrap hefur á sínum snærum fjölda innlendra sem erlendra álitsgjafa, auk þess sem stór hópur fólks, mestmegnis á aldrinum 16-32 ára, reynslukeyrir leikina á hverju stigi þróunar.
,,Við höfum fengið góð viðbrögð við leiknum sem er mjög ánægjulegt. Það er mikið lagt í leikjaspilunina, tónlistina og auk þess höfum við hugsað mikið um smáatriðin í leiknum. Allt þetta skipir miklu máli við hönnun tölvuleiks. Við vonum svo auðvitað að sem flestir prófi leikinn og hafi gaman af,” segir Jóhann.
Hægt er að sækja leikinn hér.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.